Innréttingar
Við sjáum um alhliða innanhússframkvæmdir og tökum að okkur verkefni af ýmsum stærðum. Þetta felur meðal annars í sér lagningu gólfefna á borð við harðparket og flísar, smíði lofta og milliveggja og uppsetningu innbyggðra skápa. Við tökum einnig að okkur viðbyggingar, frágang á gifsplötum og ýmis minni viðgerðarverk. Áhersla okkar er á vönduð vinnubrögð, gott skipulag og snyrtilegan frágang.
